|
|
04.11.2008 14:46:32 / berglind
»
02.09.2008 14:16:04 / berglind
Loksins, loksins koma þær 
Við erum samt ekki ennþá búin að fá myndirnar okkar, en hún Dröfn frænka tók þessar myndir. Fékk þær lánaðar hjá henni svo allir gætu séð Ég set síðan restina inn þegar við fáum þær myndir og líka myndir frá Monréal. Þar var alveg frábært að vera. Gott veður og falleg borg. Við gerðum nú ekki mikið af því að verlsa, enda tilgangur ferðarinnar að slappa af eftir flutninga og brúðkaupsstúss og notuðum við tíman vel í að skoða borgina. Fórum í ég veit ekki hvað margar kirkjur, vísindasafn, siglingu, hljólabíl, hjólabát, hestakerru, U2 tónleika í 3D bíó og margt margt fleira.
En hér koma myndirnar 
 Sr.Ólafur Jóhann sem er frændi Dodda að gifta okkur í Háteigskirkju.
 Hér eru brúðarmeyjarnar ásamt öllum gestunum að blása sápukúlum rétt áður en við gengum inn.
 Og hér erum við NÝGIFT
 Eins og margir vita þá tók langan tíma að fá brúðarkjólinn í hús. En hér er hann!
 Jónína Margrét sæta brúðarmey 
 Hér erum við ásamt foreldrum okkar við háborðið
 Hr.Þórður og Frú Berglind 
 Og ein í lokin af Jónínu Margréti sem fékk BLÁAN sleikjó, haha
Kv.Frú Berglind 
»
22.08.2008 00:04:06 / berglind
»
06.07.2008 12:15:28 / berglind
»
24.06.2008 14:49:40 / berglind
»
19.06.2008 20:58:50 / doddi
Jæja, vitiði hvað....
 (mikill fögnuður!!!!) ...eða ekki alveg formlega orðinn verkfræðingur en hef lokið öllu sem þarf til að öðlast nafnbótina. Hélt sem sagt fyrirlesturinn í dag og gat leiðrétt heilmikið sem rangt hafði verið gert í skýrslunni sem ég skilaði fyrir tveimur vikum síðan, sérstaklega nokkur atriði í sambandi við stability analysis. Prófdómararnir voru bara nokkuð hrifnir af frammistöðunni og það kom mér sérstaklega á óvart hvað þeir voru áhugasamir í tilraunastofunni... þá sá maður af hverju þessir menn eru prófessorar í því sem þeir gera, því það kom alveg glampi í augun á þeim þegar þeir fóru af fikta í græjunum  Mér gekk síðan bara vel í spurningunum fannst mér og varð lokaniðurstaða 10 í einkunn. En fyrir þá sem ekki vita þá er 10 næst hæsta einkunnin en mögulegar einkunnir eru 12, 10, 7, 4, 2, 0 og -3. Þá tekur bara flutningurinn við og undirbúningurinn fyrir brúðkaupið og leit af vinnu auðvitað, það verður sko nóg að gera. En allavega núna slappar maður af það sem eftir lifir dagsins og nýtur ljúfra tóna með A-ha! A-HA - The Sun Always Shines On TV(1985)
»
13.06.2008 07:55:55 / berglind
Sum ykkar vita að ég er byrjuð að selja LR vörur þar sem ég og Doddi prófuðum að fara á LR Henning kúrinn og skrifuðum niðurstöðurnar hér á bloggið. Til að rifja það aðeins upp þá vorum við á kúrnum í 2 1/2 viku og ég léttist um 3 1/2 kg. og Doddi um 4kg. Margir kúrar sem maður missir mikið á stuttum tíma láta mann bæta á sig aftur því sem maður náði af sér fljótlega, en ég er aðeins 300gr. þyngri núna heldur en ég var eftir kúrinn og Doddi er 500gr. léttari og við erum bara á sama gamla fæðinu núna og höfum verið síðan kúrinn kláraðist.
LR vörurnar eru ekki aðeins þessi kúr, heldur alls kyns hágæða vörur á lágu verði. Þar eru t.d. seldar baðvörur, Aloe Vera vörur, andlitsvörur og ilmvötn. Stjörnur setja nöfn sín á þessar vörur, eins og Heidi Klum, Christina Aguilera, Anastacia og Michael Schumacher.
Þessar vörur eru ætlaðar konum, körlum, börnum og dýrum.
Þar sem ég er byrjuð að selja þessar vörur hef ég opnað heimasíðu þar sem þið getið séð allar vörurnar á markaðnum.
www.lrvorur.is
»
12.06.2008 11:20:18 / berglind
»
08.06.2008 14:32:27 / berglind
»
06.06.2008 10:37:56 / doddi
Gott að vita að á meðan fótboltavertíðin nær hæstu hæðum með EM þá er líka hugsað um þá karlmenn sem ekki hafa gaman af fótbolta. Á meðan EM er í gangi í karlaknattspyrnu þá er líka EM í bikínibolta kvenna, skoðið myndbandið í þessum link og hugsið ykkur aðeins um á hvorri stöðinni þið verðið með stillt á, TV2 eða SBS.NET: http://ekstrabladet.tv/sport/article1016884.ece
»
01.06.2008 16:41:39 / berglind
»
29.05.2008 09:42:08 / berglind
Þá er það orðið alveg pottþétt! Við erum að fara að flytja heim til Íslands!!!!
Við vorum reyndar búin að segja upp leigusamningum hérna úti og líka í litla kotinu okkar á Íslandi, því við þurftum jú að gera það þótt við yrðum áfram úti til að eiga eitthvað heimili ef við myndum flytja heim og við vildum ekki heldur vera að borga 3ja mánaðar leigu hér og vera flutt heim til Íslands svo þannig var nú það.
En síðan fékk ég gjörsamlega raunveruleikasjokk um daginn þegar það bankaði maður upp á og vildu fá að skoða íbúðina því hann ætlaði kannski að flytja hingað inn. Það fannst mér heldur skrítin tilfinning Síðan hélt það bara áfram. Ég fékk bréf frá ljósmóðurskólanum um að ég hefði ekki komist inn og þá var það orðið alveg pottþétt að við værum að koma heim! Og síðan lét ég dagmömmuna hennar Jónínu Margrétar vita af því að við værum að fara að flytja heim svo ég skrifaði undir uppsagnarsamning hjá dagmömmunni í gær. ÚFF! Síðan ætla ég núna að fara að pakka niður í nokkra kassa. Þið trúið því ekki hvað þetta er skrítið. Mér fannst samt ekki svona skrítið að flytja út.
Annars sótti ég líka um í hjúkkunni á Íslandi. Ég bjóst bara við því að það væri nóg að vera með stúdendtspróf, en maður þarf að vera með ýmislega áfanga inni í því. Ég er reyndar með alla nema EFN103 og síðan var ég svooo heppin að frá og með vori 2008 þarf maður líka að vera með EFN203 Svo ég byrja í sumarskóla í næstu viku Þetta er kannski ekki alveg besti tíminn fyrir sumarskóla þar sem það fer allt á fullt núna í að pakka og undirbúa flutningana, síðan erum við líka að undirbúa brúðkaup og Jónína Margrét byrjar ekki á leikskóla fyrr en í lok ágúst svo hún verður heima hjá mér og ég er að segja ykkur það að það er gjörsamlega ómögulegt að læra með hana heima. En mamma getur vonandi passað hana eitthvað. Síðan ekki til að bæta það, þá eru prófið í sömu viku og brúðkaupið þegar allt er örugglega á fullu í að klára að undirbúa brúðkaupið En svona verður þetta bara að vera, úff, úff, úff og meira úff!
En annars verður ferðaplanið okkar þannig. Doddi útskrifast á föstudeginum 27.júní, svo við höfðum hugsað okkur að fá gám á mánudeginum 30.júní, síðan fara til Berlínar daginn eftir í smá útskrifarferð og vera þar til 4. eða 5.júlí og þá komum við heim Þetta er alla vega planið núna, en það getur alveg breyst. En það er alla vega pottþétt að við komum í síðasta lagi heim 5.júlí 
Þetta eru smá fréttir frá fólkinu í Álaborg og bráðum Reykjavík 
Ég fæ alveg bara heimþrá við að skrifa þessa færslu!
Kveðja frá okkur í Danaveldi.

»
21.05.2008 19:19:27 / berglind
Það er ekkert smáræði hvað hún Jónína Margrét okkar er orðin stór stelpa. Hún er farin að tala svo mikið og geta svo margt! T.d. í gær þá var hún var fara að sofa og síðan tók hún bangsann sinn og lét hann vinka foreldrunum og sagði "Bless, bless, góða nótt". Það var líka í gærkvöldi, þegar ég var að gera hana klára til að fara í háttinn þá sagði hún "Jónína dugleg, tyggjó, mamma líka tyggjó, pabbi líka tyggjó". Það var semsagt vegna þess að við höfum alltaf gefið henni eitthvað góðgæti þegar hún pissar í koppinn og er tyggjó algjörlega í uppáhaldi Hún er líka orðin svo dugleg að vera bleyjulaus. Við erum með koppinn frammi í stofu, þar sem hún tætir allt inn á baði ef það er opið :/ En hún byrjar alltaf á því þegar hún vaknar að taka bleyjuna af sér sjálf og pissa í koppinn, síðan fær hún bleyju þegar hún fer til dagmömmunar og síðan er hún tekin af þegar hún kemur heim og þá er hún bleyjulaus alveg þangað til hún fer að sofa og fer alltaf alveg sjálf á koppinn Hún var veik núna síðustu daga og þá var hún alveg bleyjulaus allan daginn, nema þegar hún svaf og það gekk bara alveg eins og í sögu. Svo nú er bara það næsta að láta hana sofa án bleyju Síðan getur þetta barn allt líka og er náttúrulega bara mesti tætari og prílari sem til er (erfði það frá föðurnum ). Þegar hún var alltaf farin að stíga upp í neðstu skúffuna inni í eldhúsi til að teygja sig upp á borð til að geta tætt hressilega þá var sett barnalæsing á þá skúffu. En sú stutta gerir sér þá bara lítið fyrir núna og klifrar upp skúffurnar og er barasta öll komin upp á borð. Síðan er frökenin líka barasta búin að læra að opna barnalæsingarnar og það á nammiskápnum, takk fyrir! Er stundum komin með troðfullan munninn af nammi ef foreldranir eru ekki nógu fljótir að hlaupa
En síðan er það af hinu barninu okkar, honum Skúla. Það er nefnilega þannig að við erum að fara að flytja heim núna í lok júní/byrjun júlí og Skúli verður ekki tekinn með heim til Íslands, en honum vantar gott heimili til að búa á. Hann er útikanína, en hann getur alveg verið innikanína og það fylgir með honum útibúr og innibúr. Hann Skúli verður 1 árs í ágúst og er algjört yndi. Honum þykir æðislegt að fá að hlaupa aðeins um og elskar að láta klóra sér á bakvið eyrun og á enninu. Hann kemur oft hlaupandi til manns til að sníkja klapp og fer þá gjarnan upp á tvær fætur til að vera alveg viss um að fá klappið sitt. Hann er brúnn og hvítur og með brún augu og hér kemur er mynd af litlu beautybollunni minni.

Hver vill eiga mig?
S:40516539 eða e-mail erlaberglind@gmail.com
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
Heimsóknir
Í dag: 9 Alls: 52445
|